Fara í meginmál
17. nóvember 2026

Landsréttur staðfestir dóm Staðarfjalli ehf. í vil

Landsréttur staðfestir dóm Staðarfjalli ehf. í vil

Landsréttur staðfesti nýverið dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. 728/2025, Litlaland ehf. gegn Staðarfjalli ehf. Litlalandi var gert að greiða Staðarfjalli 33,5 milljónir króna í dagsektir vegna verulegs dráttar á afhendingu fasteignar og kyrrsetning í eignum félagsins var staðfest.

Í málinu reyndi meðal annars á hvenær samningsbundnar dagsektir verða gjaldkræfar. Niðurstaðan var sú að réttur til dagsekta stofnast hvern dag sem afhendingardráttur varir og að seljandi getur ekki frestað uppgjöri þeirra til lokauppgjörs þegar það er hans eigin vanefnd sem stendur lokauppgjörinu í vegi. Þá var kaupanda heimilt að halda eftir eigin efndum þar til umsamin afhending hefði farið fram.

Mörkin lögmannsstofa gætti hagsmuna Staðarfjalls ehf. og flutti Einar Þór Sverrisson lögmaður málið á báðum dómstigum.

Fleiri fréttir

Allar fréttir