Fara í meginmál
11. nóvember 2026

Landsréttur staðfestir frávísun í máli Alcoa Fjarðaáls gegn Samskipum

Landsréttur staðfestir frávísun í máli Alcoa Fjarðaáls gegn Samskipum

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá skaðabótamáli sem Alcoa Fjarðaál hf. höfðaði gegn Samskipum hf. og Eimskipafélagi Íslands hf.

Skaðabótakrafan var reist á niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins í ákvörðun nr. 33/2023. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði hins vegar fellt úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem laut að þeirri háttsemi sem krafa Alcoa byggði á. Landsréttur féllst á að ekki væru skilyrði til að taka málið til efnismeðferðar í þeirri mynd sem það var höfðað og staðfesti því frávísun þess.

Mörkin / Jonsson & Hall gætti hagsmuna Samskipa í málinu. Með málið fóru Hörður Felix Harðarson og Peter Dalmay.

Fleiri fréttir

Allar fréttir