10. nóvember 2026
ESA lokar rannsókn á Lyfjavali án frekari aðgerða

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að loka rannsókn sinni á meintri markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf vegna starfsemi Lyfjavals ehf. Samkvæmt tilkynningu stofnunarinnar leiddi ítarleg greining og mat á gögnum til þeirrar niðurstöðu að ekki væri tilefni til að halda rannsókninni áfram.
Mörkin lögmannsstofa gætti hagsmuna SKEL fjárfestingafélags hf., meirihlutaeiganda Dranga hf., móðurfélags Lyfjavals ehf., í tengslum við rannsóknina. Málið var um margt sérstakt þar sem fyrirvaralaus athugun ESA hjá Lyfjavali var sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Að málinu komu Einar Þór Sverrisson og Hildur Leifsdóttir.


