Fara í meginmál
4. nóvember 2026LinkedIn

Tvö samrunamál samþykkt í fyrsta fasa og áframhaldandi þátttaka í mikilvægum viðskiptum

Tvö samrunamál samþykkt í fyrsta fasa og áframhaldandi þátttaka í mikilvægum viðskiptum

Við erum stolt af því að hafa aðstoðað Umbúðamiðlun ehf. við kaup á rekstri 1990 ehf., sem voru nýverið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu án skilyrða í fyrsta fasa.

Félögin starfa á markaði fyrir leigu á margnota fiskikerum og vörubrettum. Í ákvörðun nr. 30/2026 komst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að samruninn gæfi ekki tilefni til íhlutunar þar sem hann væri ólíklegur til að hafa skaðleg áhrif á samkeppni.

Þessi niðurstaða bætist við röð spennandi verkefna sem við höfum unnið að á sviði samruna og fyrirtækjakaupa að undanförnu. Nýlega höfðum við einnig ánægju af því að ráðleggja Drangar hf. við kaup félagsins á Brauð & Co, einu þekktasta og sterkasta vörumerki landsins á markaði fyrir handverksbakarí.

Með þeim viðskiptum bætti Drangar við sig öflugu og rótgrónu félagi sem markaði mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og vexti samstæðunnar.

Það eru forréttindi að fá að vinna með framsæknum fyrirtækjum við mikilvæg vaxtarskref, hvort sem um er að ræða samruna, yfirtökur eða önnur stefnumarkandi viðskipti.

Að ráðgjöfinni fyrir hönd Markarinnar komu Einar Þór Sverrisson, Almar Möller, Hildur Leifsdóttir og Peter Dalmay.

Við þökkum Umbúðamiðlun og Dröngum fyrir traustið og ánægjulegt samstarf og óskum þeim góðs gengis á komandi vegferð.

Fleiri fréttir

Allar fréttir