Fara í meginmál
25. júní 2026LinkedIn

Mörkin leiðir hagsmunagæslu vegna deiliskipulags við Suðurlandsbraut

Suðurlandsbraut í Reykjavík, þar sem skrifstofa Markarinnar stendur og deiliskipulagsmálið á við.

Mörkin lögmannsstofa hf. tók að sér að gæta hagsmuna eigenda fasteigna við Suðurlandsbraut í tengslum við deiliskipulagstillögu svæðisins og fyrirhugaða borgarlínu, sem áður hafði verið samþykkt í borgarstjórn.

Við skiluðum ítarlegri umsögn í Skipulagsgátt og kynntum jafnframt sjónarmiðin fyrir oddvitum allra framboða til borgarstjórnar (https://lnkd.in/gF2mZhUW).

Í umsögninni bentum við m.a. á að ekki hefði verið tekið nægilegt tillit til hagsmuna fasteignaeigenda og rekstraraðila við götuna. Þá var gerð athugasemd við skort á samráði, meðalhófs og rannsóknar, auk annarra annmarka á málsmeðferðinni.

Við færðum rök fyrir því að óbreytt framkvæmd gæti falið í sér brot á réttindum þeirra sem málið varðar og skapað bótaábyrgð fyrir Reykjavíkurborg og Betri samgöngur. Jafnframt var hvatt til raunverulegs samráðs og samvinnu í stað ágreinings.

Ný borgarstjórn hefur nú sett það á verkefnalista fyrstu 100 daganna að endurskoða deiliskipulagið í samráði við hagsmunaaðila við Suðurlandsbraut.

Það er ánægjulegt að sjá að málefnaleg rök og samstaða geti haft áhrif á framgang mála.

Mörkin er stolt af því að hafa leitt þetta verkefni og þakkar það traust sem okkur hefur verið sýnt. Við höldum áfram vinnu við málið í viðræðum við Reykjavíkurborg og Betri samgöngur um nauðsynlegar breytingar.

https://lnkd.in/gd52ycm6

Fleiri fréttir

Allar fréttir