Fara í meginmál
30. september 2026LinkedIn

Ársfundur SCG Legal

Ársfundur SCG Legal

Fulltrúar Markarinnar lögmannsstofu sóttu á dögunum ársfund SCG Legal, sem haldinn var í Washington, D.C., ásamt lögmönnum víðs vegar að úr heiminum.

Á fundinum lét Gunnar Jónsson af hlutverki atkvæðisbærs fulltrúa stofunnar eftir 28 ára starf og hlaut „Above and Beyond“-viðurkenningu samtakanna. Peter Dalmay tók við keflinu af Gunnari.

Þótt þetta væri fyrsti fundur Peters í nýju hlutverki tók hann þátt í pallborðsumræðum um samruna og yfirtökur, fjármagnsmarkaði og þróun regluverks á þeim sviðum.

Mörkin þakkar SCG Legal og öðrum aðildarstofum fyrir framúrskarandi fund og hlakkar til áframhaldandi samstarfs þvert á landamæri.

Fleiri fréttir

Allar fréttir