Mörkin lögmannsstofa var ráðgjafi Héðins við fjárfestingu VEX

Mörkin lögmannsstofa var ráðgjafi Héðins í tengslum við fjárfestingu VEX, en framtakssjóður í rekstri VEX hefur samið um kaup á nýju hlutafé sem samsvarar 34% hlut í Héðni eignarhaldsfélagi ehf., móðurfélagi Héðins hf.
Héðinn hefur í rúma öld þjónustað sjávarútveg, orkufyrirtæki og stóriðju. Félagið sameinar sterkan kjarnarekstur og nýsköpun, meðal annars með Héðinshurðum, hugbúnaðarlausninni Magna Solutions og nýrri spantækni sem félagið hefur fengið einkaleyfi á. Með aðkomu VEX fær félagið öflugan samstarfsaðila til að styðja við áframhaldandi vöxt, bæði hér á landi og erlendis.
Núverandi eigendur selja ekki af sínum hlut og munu áfram leiða félagið ásamt nýjum hluthafa.
Við óskum Guðmundi Sveinssyni, Halldóri Lárussyni, Eðvarði Inga Björgvinssyni og öllu starfsfólki Héðins til hamingju með þennan áfanga. Við þökkum jafnframt VEX og ráðgjöfum kaupanda, LOGOS og Deloitte, fyrir gott samstarf.
Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.


