Fara í meginmál
19. október 2026LinkedIn

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellir úr gildi sektarákvörðun Samkeppniseftirlitsins gagnvart Landsvirkjun

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellir úr gildi sektarákvörðun Samkeppniseftirlitsins gagnvart Landsvirkjun

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála kvað í dag upp úrskurð þar sem felld var úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að leggja 1,4 milljarða króna stjórnvaldssekt á Landsvirkjun. Málinu var vísað aftur til Samkeppniseftirlitsins til nýrrar meðferðar.

Mörkin lögmannsstofa gætti hagsmuna Landsvirkjunar í málinu.

Í úrskurðinum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að rannsókn málsins hefði ekki uppfyllt kröfur rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar. Annmarkar hefðu meðal annars lotið að markaðsskilgreiningum og mati á áhrifum verðlagningar á samkeppni.

Úrskurðurinn hefur þýðingu umfram einstakt mál og veitir mikilvæga leiðsögn um þær kröfur sem gerðar eru til rannsóknar og greiningar í samkeppnismálum, einkum þegar kemur að markaðsskilgreiningum og mati á ætlaðri röskun samkeppni.

Fleiri fréttir

Allar fréttir