Starfssvið
Efnahags- og fjármunabrot
Efnahags- og fjármunabrot snerta jafnt fyrirtæki, stjórnendur og einstaklinga. Mörkin lögmannsstofa sinnir vörn í sakamálum.
Sérhæfð þjónusta og reynsla
Lögmenn Markarinnar hafa mikla reynslu sem verjendur í sakamálum varðandi skattalagabrot, bókhaldsbrot, umboðssvik, mútubrot, peningaþvætti og brot á reglum um verðbréfaviðskipti. Ráðgjöfin getur einnig tekið til fyrirtækja sem hafa orðið fyrir tjóni vegna efnahags- og fjármunabrota.
Áhersla er lögð á að greina réttarstöðu strax á fyrstu stigum, hvort sem rannsókn er í höndum héraðssaksóknara, Skattsins eða annarra eftirlitsstofnana. Vandaður undirbúningur skiptir miklu máli fyrir framvindu málsins.
Mörkin lögmannsstofa annast einnig ráðgjöf um innra eftirlit, regluvörslu og fyrirbyggjandi aðgerðir, þannig að fyrirtæki geti dregið úr áhættu og brugðist rétt við ábendingum eða innri uppgötvunum.
Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum skýra og hagnýta ráðgjöf sem byggir á reynslu af málflutningi í flóknum efnahagsbrotamálum, jafnt á rannsóknarstigi sem fyrir dómi.
Dæmi um viðfangsefni
- Vörn í sakamálum
- Ráðgjöf á rannsóknarstigi
- Innra eftirlit og regluvarsla
- Brot á verðbréfa- og skattalöggjöf
- Málflutningur fyrir dómi
Sérfræðingar okkar í efnahags- og fjármunabrotum
Allt starfsfólk
Almar Þór Möller
Landsréttarlögmaður / Eigandi
almar@law.is
Einar Þór Sverrisson
Hæstaréttarlögmaður / Eigandi
einar@law.is
Gísli Guðni Hall
Hæstaréttarlögmaður / Eigandi
ggh@law.is
Hildur Leifsdóttir
Héraðsdómslögmaður / Eigandi
hildur@law.is
Hörður Felix Harðarson
Hæstaréttarlögmaður / Eigandi
hordur@law.is
Jón Örn Árnason
Héraðsdómslögmaður / Eigandi
jonorn@law.is
Peter Dalmay
Héraðsdómslögmaður / Eigandi
peter@law.is
Gestur Jónsson
Hæstaréttarlögmaður / Ráðgjafi
gestur@law.is
Ragnar Halldór Hall
Ráðgjafi
rhh@law.is